Tuesday, March 3, 2009

Ekki velkomin hvar sem er.

Við fengum ekki að vera með í burraskólanum í gær. Ökukennarinn hringdi í mig alveg eins og aumingi og sagði að hann mætti ekki taka á móti okkur. Slólastjórinn var nefnilega búinn að sjá það að frumburinn er búinn að sækja um í öðrum mennta skóla næsta haust. Og þessi kennsla er semsé fyrir foreldra þeirra barna sem ætla að vera kjurr í hans skóla. Ég hef ekki vitað það fáránlegra en redda þessu þá öðruvísi.

Hvað ætli mann bjáninn segji ef frumburinn kemst ekki inn í skólanum sem hún er búin að sækja um í og heldur áfram. Nei afskið en endilega bentu mömmu þinni á að það er hægt að fara á námskeiðið svo hún geti hjálpað þér að æfa þig að keyra hér hjá okkur.

Fíflagangur fer í taugarnar á mér. Eins gott að hún komist inn í hinn skólann því ég set ekki fót minn þarna framar. Og hér með banna ég einkasyninum að sækja um þarna, frekar flyt ég svo hann komist í annann skóla en leyfa honum að byrja í illabæjarskóla í Högsby.

Já ég er stúrin, svaf líka mjög illa í nótt og dreymdi martröð í klukkutíma. Ég held ég meigi argast!!

Á morgun er betri og bjartari dagur....

2 comments:

Hólmfríður Marjorie =) said...

Það máttu sannarlega gera Birna mín!
Þetta er fáránlegt .. =/

Birna said...

Takk krúttið mitt. Ég er betri í skapinu í dag ;-)